| Blönduós |
|
|
|
|
Tjaldsvæðið á Blönduósi er staðsett í Brautarhvammi sem liggur hægra megin við þjóðveg 1 þegar komið er að Blönduósi frá Reykjavík. Tjaldsvæðið liggur skammt frá stórlaxaánni Blöndu og eru fallegar gönguleiðir meðfram ánni. Hægt er að ganga upp með ánni og yfir göngubrú útí litla eyju sem Hrútey. Á Hrútey er fallegur gróður og fjölskrúðugt fuglalíf. Einnig er hægt að ganga eftir göngustígum með Blöndu til sjávar og sjá ós Blöndu þar sem hún rennur til sjávar og bærinn dregur nafn sitt af. Póstnúmer: 541 Blönduósi
Sími / GSM: 452 4189 / 820 1300
Heimasíða. www.gladheimar.is
Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 235 km / 430 km
Opnunartími: 15. maí - 15. september
Aðstaða fyrir:
Tjöld
Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi
Húsbíla
Þjónusta á svæðinu |






