| Siglufjörður |
|
|
|
|
Tjaldsvæði bæjarins er staðsett í miðbænum við torgið og smábátabryggjuna. Öll þjónusta, afþreying og söfn eru í 5-10 mínútna göngufæri. Fjallasýn er mjög falleg. Sunnan við snjóflóðavarnagarðinn (Stóra bola) er annað svæði fyrir þá sem kjósa ró og frið og þaðan er stutt á golfvöllinn, í heshúsabyggð og fuglavarp. Um 10 mínútna gangur er niður í miðbæ og þar er hús með salernum og aðstöðu. Ýmsir viðburðir eru skipulagðir á svæðinu í sumar og þar má nefna Blúshátíð á Ólafsfirði í lok júní, Þjóðlagahátíð á Siglufirði í byrjun júlí og Síldarævintýrið á Siglufirði í byrjun ágúst. Berjadagar eru líka haldnir hátíðlegir seinni partinn í ágúst. ![]()
Heimilisfang: Gránugötu 24
Annað:
Líkamsræktarstöð
Söfn Sjóstöng Siglingar
|






