| Reykjahlíð(Mývatn) |
|
|
|
|
Hlíð ferðaþjónusta í Reykjahlíð stendur vid norðanvert Mývatn sem er ein mesta náttúruperla Íslands. Umhverfið í kringum Mývatn er einnig stórkostlegt. Sem dæmi um nátturuperlur má nefna Hveri, Hverfjall, Dimmuborgir, Kröflu, Leirhnjúk, Grjótagjá, Höfða, Skutustadagíga og Laxá
Fuglalífið í Mývatnssveit er med afbrigðum mikið og veiði er góð í Laxánni.
![]() Í afgreiðslunni hjá Hlíð ferðaþjónustu er hægt ad nálgast göngu- og hjólaleiðakort um nágrennið og þar er hægt að leigja hjól. Einnig er hestaleiga á staðnum. Góð 12 km gönguleið liggur beint frá tjaldsvæðinu og upp í Kröflu. Frábær 37 km hjólaleið er í kringum vatnið og margt að sjá á leiðinni. Skemmtilegt er t.d. ad stoppa og skoða Hverfjall og Dimmuborgir. Góð hugmynd er svo að enda hjólatúrinn i jarðböðunum sem eru staðsett 7 km frá ferðaþjonustunni.
Mjög góð aðstaða er fyrir tjöld og tjaldvagna og hægt er að komast í rafmagn. Þvottahús er á staðnum og hægt er að láta þvo og þurrka fyrir sig.
Ferðaþjónustan er staðsett 1 km frá vatnsbakkanum sem þýðir að mun minna er um flugu þar heldur en nær vatninu.
Á svæðinu er lítil búð þar sem hægt er að fá mjólk og mjólkurvörur, allt til morgunnverðar, ís, gos og sælgæti. 2 km eru svo í næstu búð og bensínstöð. 4 km eru í sundlaug og 9 holu golfvöll.
Handhafar Útilegukortsins eru beðnir um að skrá sig inn á svæðið í móttökunni þegar þeir mæta á svæðið.
Heimilisfang: Hraunbrún
Póstnúmer: 660 Mývatn
Sími / GSM: 464-4103/899-6203
Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 500 km/192 km
Opnunartími: 1. júní til 10. september
Aðstaða fyrir:
Tjöld
Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi
Húsbíla
|






