Ferðaþjónustan Fjalladýrð Möðrudal á Fjöllum er staðsett miðja vegu milli Mývatns og Egilsstaða við veg 901. Fjalladýrð býður gestum sínum uppá fjölbreytta þjónustu í kyrrlátu umhverfi.

Staðurinn er rómaður fyrir fagra fjallasýn og víðsýni til allra átta, en þar má sjá drottningu íslenskra fjalla – Herðubreið gnæfa tignarlega yfir umhverfi sitt, Kverkfjöll rísa úr Vatnajökli og Víðidalsfjöllin baða sig í kvöldsólinni.

Fjallakaffi er snotur burstabær sem býður uppá þjóðlegar veitingar og hefur getið sér gott orð fyrir kraftmikla kjötsúpu og gómsætar kleinur. Einnig er þar að finna íslenskt handverk til sölu, auk hefðbundinnar ferðasjoppu.

Gistiaðstaðan er í rómantískum baðstofum í gamla stílnum sem henta vel fyrir pör, fjölskyldur eða minni hópa. Einnig er boðið uppá 1-4 manna herbergi í uppábúnum rúmum eða í svefnpoka.
Tjaldstæðið er búið öllum helstu þægindum fyrir tjaldgesti jafnt sem húsbíla eigendur, þar sem til staðar er rafmagn, sturtu- og eldunaraðstaða. Einnig verður þvottaaðstaða tilbúinn fyrir sumarið 2008. Sparkvöllur og frispygólf er til staðar fyrir alla fjölskylduna.

Gönguleiðir eru margar skemmtilegar út frá Möðrudal og eru þær kortlagðar, vel merktar og stikaðar.
Jeppaferðir og gönguferðir um náttúruperlur norður hálendisins t.d. á Herðubreið, í Öskju, Herðubreiðarlindir, Kverkfjöll, Hafrahvammagljúfur eða sérsniðnar ferðir að óskum.
Verið velkominn á fjöll í sumar og
bragðið á kraftmiklu kjötsúpunni og fjallakaffiskleinunum!
Eldsneytis sala í torfbæ – komið og upplifið skemmtilegri áfyllingu á bílinn!
Heimilisfang: Möðrudalur
Póstnúmer: 701 Egilsstaðir
Sími / GSM: 471-1858/ 894 8181
Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 560 km/130 km
Opnunartími: 26. maí til 15. september
Aðstaða fyrir:
Tjöld
Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi