Þórshöfn PDF Print E-mail
 

Tjaldsvæðið okkar er í ofarlega í þorpinu á kyrrlátum og notalegum stað. Þaðan er öll þjónusta í þorpinu í göngufæri.  Aðstaða á tjaldsvæðinu er góð, þar eru borð og bekkir, salernisaðstaða og aðstaða fyrir hjólhýsi og húsbíla. Í íþróttahúsinu Verinu er aðstaðan til fyrirmyndar, þar er stór og góð innisundlaug og heitir pottar, íþróttasalur og líkamsrækt. Þar er einnig upplýsingamiðstöðin staðsett og ýmis önnur aðstaða fyrir ferðamenn, t.d. þvottavél. Við íþróttahúsið er sparkvöllur þar sem oftar en ekki er hægt að finna bæði með- og mótspilara.




Hjarta Þórshafnar slær í takt við sjávarföllin, þar hefur útgerð og fiskvinnsla verið aðalatvinnuvegurinn í gegnum tíðina. Því er einstaklega gaman að rölta niður að höfn kíkja á mannlífið og jafnvel kíkja á veitngahúsið Eyrina, sem meðal annars býður upp á kúffisksúpu en kúffiskveiðar eru eitt af mörgu sem skapar Þórhöfn sérstöðu.

Þjónusta á Þórshöfn er mjög góð, þar er heilsugæsla, verslun, veitingastaður, íþróttahús, sparisjóður, bensínstöð ofl.


Kátir dagar

Áhverju sumri eru haldnir Kátir dagar á Þórshöfn. Í ár verða Kátir dagar14-19 júlí. Allskonar menning og afþreying í boði á staðnum. Dagskráin er gríðarlega metnaðarfull og sækir í sig veðrið með hverju árinu sem líður, listasýningar, leiksýningar, hestaferðir, gönguferðir, dansleikir og svona mætti lengi telja. Þessa daga bjóða Þórshafnarbúar gesti alveg sérstaklega velkomna og bærinn iðar af lífi.

 



Áhugaverðir staðir í nágrenni Þórshafnar

 

Langanes

Ferð út á Langanes er einstök upplifun, jafnt fyrir þá sem hafa áhuga á náttúru, menningu og útivist. Þeim sem fara um nesið gefst færi á að skoða fjölskrúðugt fuglalíf. Undir Skoruvíkurbjargi er klettadrangur sem heitir Stórikarl. Þar er mesta súluvarp á Norðurlandi og einnig verpa þar margar aðrar fuglategundir t.d. langvía, ryta og fýll

Þar eru merktar gönguleiðir þar sem tækifæri gefst til að upplifa náttúruna í kyrrð og ró. Síðast en ekki síst er á Langanesi eyðiþorpið Skálar þar sem fyrrum var mikil verstöð og enn í dag gefur þar að líta minjar um það mikla líf sem þar var áður. Öll býli á útnesinu eru nú komin í eyði.  Mikil hlunnindi hafa þar löngum verið af reka, æðarvarpi og bjargfuglatekju.

 

Sauðanes

Kirkjustaðurinn Sauðanes er um 7 km norðan Þórshafnar. Þar eru landkostir miklir og hlunnindi svo sem æðarvarp, reki og silungsveiði. Staðurinn var því lengi eftirsóttur enda Sauðanes talið, á sínum tíma, eitt af þremur bestu prestaköllum landsins. Talið er að kirkja hafi staðið á Sauðanesi allt frá 12.öld. Gamla prestshúsið er gert úr steini er fluttur var langt að og tilhöggvinn á staðnum. Í gamla húsinu á Sauðanesi er í dag starfrækt minjasafni, upplýsingaþjónusta fyrir ferðamenn og veitingasala.

 

Bakkafjörður

Bakkafjörður við Bakkaflóa er næsti þéttýliskjarni við Þórshöfn. Þar er sérstaklega falleg höfn og þaðan er mikil smábátaútgerð. Það er skemmtilegt að sjá bátana koma að og fylgjast með löndun. Einnig er hægt hægt að fara frá Steintúni sem er rétt utan við Bakkafjörð í gönguferð að Digranesvita og niur í Viðvík.




Fugfélag Íslands er með daglegt flug frá Reykjavík til Þórshafnar með millilendingu á Akureyri.

Vegalengdir frá nokkrum stöðum til Þórshafnar:


Bakkafjörður 45 km

Vopnafjörður 70 km

Reykjavík 694 km

Akureyri 305 km

Egilsstaðir 205km

Seyðisfjörður 233 km

Höfn á Hornafirði 452km

Húsavík 214 km

Heimilisfang: við Hálsveg
Póstnúmer: 680 Þórshöfn
Sími / GSM: 468 1220
Heimasíða: www.lnb.is
Netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði:  694km / 233km
Opnunartími: 1.júní – 31.ágúst
Aðstaða fyrir:
Tjöld
Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi
Húsbíla

Salerni
Kalt vatn
Gámar fyrir rusl



0,5 km
0,5 km
Opinn eldur bannaður
Bekkir og borð
Fjallasýn

0,5 km
0,5 km
0,5 km
Veitingahús

Vínveitingar


Gönguleiðir
10 km
       
 
 
 
Útilegukortið, Powered by Joomla!; Joomla templates by SG web hosting
login