| Seyðisfjörður |
|
|
|
|
Tjaldsvæði Seyðisfjarðar er staðsett í miðjum bæ og er svæðið umgirt trjágróðri sem veitir skjól. Húsbílastæði eru tvö, annað er rótgróið og svæði II er í uppbyggingu. Á Seyðisfirði er margvísleg þjónusta við ferðamenn, yfir sumartímann er þar rekin kajak- og fjallahjólaleiga, möguleiki er á fiskitúr með heimamönnum. Bryggjuveiði og silungsveiði í Fjarðará síðsumars er einnig spennandi kostur. Tækniminjasafn Austurlands með elstu vélsmiðju og elstu ritsímastöð landsins m.a. á safnasvæðinu. Elsta riðstraums-bæjarveita er á Seyðisfirði, rafstöðin er enn starfrækt og að hluta til rekin sem safn á sumrin. Nánari upplýsingar í upplýsingamiðstöðinni við Ferjuleiru 1 sem er opin daglega, sími 472 1551.
![]() Fjölbreyttir menningarviðburðir Fjölbreyttir menningarviðburðir eru í boði á Seyðisfirði allt árið. Skaftfell, menningarmiðstöð, er með myndlistasýningar, handverkshús og sérviskulegar verslanir með minjagripi og fleira forvitnilegt má sjá í bænum. Í sundlauginni er sauna og heitir pottar. Gönguleiðir eru stikaðar yfir í næstu firði og upp á hæstu tinda, hægt er að gerast,,Fjallagarpur Seyðisfjarðar", nánar má fræðast um það á www.seydisfjordur.is. Gönguferð út í Skálanes er þægileg dagsferð fyrir alla fjölskylduna og fuglaáhugamenn mega ekki sleppa því að heimsækja Skálanes.
Perla í lokaðri skel
Seyðisfjörður er ,,perla í lokaðri skel" eins og skáldið sagði, fjöllin sem umkringja þröngan fjörðinn eru yfir 1000 metra há og í fjarðarbotninum er einstaklega skjólsælt og friðsælt. Hægt er að aka upp að snjóflóðavarnargörðunum í Bjólfi í um 640 m hæð þar sem er stórkostlegt útsýni yfir fjörðinn. Bíla- og farþegaferjan Norræna siglir til Evrópu frá Seyðisfirði einu sinni í viku árið um kring. Yfir sumarið stendur listahátíðin Á Seyði yfir frá maí til ágústloka en á dagskrá eru fjölbreyttir menningaviðburðir og ,,hátíðir í hátíðinni" eins og sumartónleikaröðin Bláa Kirkjan og LungA-Listahátíð ungs fólks, Austurlandi. Allt þetta og meira til má kynna sér á www.seydisfjordur.is
Heimilisfang: Ránargata 5
Póstnúmer: 710 Seyðisfjörður
Sími / GSM: 472 1551/861 7789
Heimasíða: www.seydisfjordur.is
Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Fjarlægð frá Reykjavík: 681 km
Opnunartími: 1. maí til 30. september
Aðstaða fyrir:
Tjöld
Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi
Húsbíla
|






