|

Fljótsdalshérað er næstfjölmennasta sveitarfélag á Austurlandi með um 4600 íbúa og þar af búa ríflega 2750 manns í þéttbýlinu á Egilsstöðum sem er stærsti þéttbýliskjarni á Austurlandi.
Fljótsdalshérað dregur að sér fjölda ferðamanna árið um kring og aðstaða fyrir ferðamenn er mjög góð. Hægt er að njóta þjónustu á góðum veitingahúsum, skoða söfn og ýmsar minjar.
Á Egilsstöðum er úrval verslana með mjög gott vöruúrval og þjónustufyrirtæki sem taka vel á móti gestum. Þar liggja krossgötur mikilvægra samgönguleiða innan fjórðungs og til annarra landshluta, þar er alþjóðlegur flugvöllur og miðstöð landsamgangna.
Egilsstaðir eru miðsvæðis og frá fornu fari eru hér krossgötur til allra átta.
Tilvalið er að dvelja á Fljótsdalshéraði og ferðast þaðan í dagsferðir til annarra hluta Austurlands.
Á Fljótsdalshéraði er afar fjölbreytt og lifandi menningarlíf, öflug tónlistar-, myndlistar og leiklistarstarfsemi og fjölþætt starfsemi í klúbbum og félagasamtökum. Lifandi safnastarf býður upp á sérsýningar og ýmisskonar kynningar- og skemmtidagskrár. Fjöldi árvissra menningarhátíða er haldinn á Fljótsdalshéraði með þátttöku fjölda listamanna víða að úr heiminum sem laða að fólk úr öllum landshlutum og öðrum löndum.
Fljótsdalshérað er rómað fyrir náttúrufegurð og gott veðurfar, sem minnir oft á loftslag á meginlandi Evrópu. Skóglendi einkennir svæðið og setur mikinn svip á umhverfi og mannlíf og fossar, vötn og ár setja svip á landið. Þar eru fjölmargir staðir vel fallnir til útivistar og margar skemmtilegar gönguleiðir hvort sem er í skógi eða fjöllum. Dýralíf er fjölbreytt og góð aðstaða til fuglaskoðunar og hreindýrin hafa mikið aðdráttarafl. Mjög víða er gott berja- og sveppaland og ferðir um nálæg fjalllendi eru vinsælar sumar sem vetur. Stangveiði er stunduð í ám og vötnum og fá svæði á Íslandi eru meira spennandi fyrir skotveiði.
Heimilisfang: Kaupvangi 17 Póstnúmer: 700 Sími / gsm: 470-0750 Neyðarsími 862-3790 Heimasíða: egilsstadir.is Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Opnunartími: 1 júní til 1 september Aðstaða fyrir: Tjöld Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi Húsbíla






























|