Kleifarmörk PDF Print E-mail
Tjaldsvæðið Kleifar stendur við Geirlandsveg 2,5km. frá Kirkjubæjarklaustri. Við tjaldsvæðið er fallegur foss sem heitir Stjórnarfoss og á góðviðrisdögum verður vatnið í Stjórninni svo heitt að hægt er að fá sér sundsprett. Á tjaldsvæðinu eru tvö vatnssalerni og kalt rennandi vatn, bekkir og borð og beint á móti tjaldsvæðinu er fótboltavöllur. Stutt er á Kirkjubæjarklaustur þar sem hægt er að komast í matvöruverslun, veitingastaði og sundlaug svo eitthvað sé nefnt. Mikið er af skemmtilegum merktum gönguleiðum í nágrenni tjaldsvæðisins og fallegum stöðum til að skoða. Þar má nefna til dæmis Kirkjugólfið, sem er í túninu rétt austan Kirkjubæjarklausturs og skammt frá Hildishaug. Þetta er u.þ.b. 80 m² jökul- og brimsorfinn stuðlabergsflötur, þar sem sést ofan á blágrýtissúlurnar. Þarna hefur aldrei staðið kirkja en engu öðru er líkara en flöturinn hafi verið lagður af manna höndum.



Einnig er gaman að skoða Kapelluna á Kirkjubæjarklaustri sem var vígð árið 1974 og byggð í minningu sr Jóns Steingrímssonar, þess klerks sem söng hina frægu Eldmessu, 20. Júlí 1783, í kirkjunni á Klaustri. Talið er að Eldmessan hafi stöðvað hraunstrauminn sem þá ógnaði byggðinni. Systrastapi er klettastapi vestan við Klaustur. Þjóðsaga segir að uppi á stapanum sé legstaður tveggja klaustursystra sem áttu að hafa verið brenndar á báli fyrir brot á siðareglum. Önnur hafði selt sig fjandanum, gengið með vígt brauð fyrir náðhúsdyr og lagst með karlmönnum. Hin hafði talað óguðlega um páfann. Eftir siðaskiptin var seinni nunnan talin saklaus og á leiði hennar óx fagur gróður en á leiði hinnar seku var gróðurlaust. Klifurfært fólk kemst upp á stapann en þaðan er mikið útsýni með jöklasýn.

Heimilisfang: Kleifar-Mörk
Póstnúmer: 880 Kirkjubæjarklaustur
Sími / GSM: 487 4675/863 7546
Netfang:  This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Opnunartími: 1. júní til 31. ágúst

Aðstaða fyrir:
Tjöld
Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi
Húsbíla

 

 
Útilegukortið, Powered by Joomla!; Joomla templates by SG web hosting
login