Akranes PDF Print E-mail

Akranes er tilvalinn áfangastaður ferðamanna enda gefast fólki fjölmörg tilefni til að heimsækja bæinn – allan ársins hring. Á Akranesi er margt skemmtilegt hægt að bralla og óvíða í bæjarfélögum má finna eins margar útivistarperlur og á Akranesi – ýmist innan eða við bæjarmörk. Nægir þar að nefna Akrafjallið sjálft sem dæmi en þetta fallega fjall laðar að sér fjölda fólks á hverjum degi; fyrir suma er nánast sáluhjálparatriði að ganga á fjallið.




Langisandur er önnur perla sem býður upp á fjölbreytta útivistarmöguleika, allt frá gönguferðum til sandkastalabygginga. Gönguferð fram og til baka um sandinn tekur um 40 mínútur og Langisandur er því með réttu hinn ráðlagði dagskammtur af hreyfingu.

Garðavöllur, hinn glæsilegi golfvöllur Skagamanna, laðar að sér golfara hvaðanæva að af landinu og þar eru haldin golfmót nánast daglega á sumrin.



Þá er hægt að fara í sjóstangveiði frá Akranesi og fá sveitarfélög á landinu búa eins vel að íþróttafólki og Akranes. Gönguferð út með sjó inn að Elínarsæti á sólbjörtu sumarkvöldi er einnig ógleymanleg, ekki síst vegna hins fjölskrúðuga fuglalífs sem þar er og þá er útsýnið á þessum slóðum afar fallegt.

Á Akranesi er í boði fjölbreytt þjónusta fyrir ferðamenn, verslanir og veitingahús og tíðar og reglulegar ferðir Strætó bs. á milli Akraness og Reykjavíkur gefa möguleika á fjölbreyttum dagsferðum ferðamanna þarna á milli.




Upplýsingavefurinn www.visitakranes.is er ætlaður gestum og ferðamönnum sem hyggjast heimsækja Akranes til skemmri tíma eða lengri dvalar, hvort sem er til náttúruskoðunar, útivistar, þáttttöku í íþróttamóti, til að spila golf, heimsækja ættingja og vini, með skólanum, kórnum eða kvenfélaginu. Þar er að finna ýmsar upplýsingar og fróðleik um skemmtilega dægradvöl og áhugaverða staði - raunar allt það sem Skaginn hefur upp á að bjóða.

Komdu og eigðu skemmtilega daga á Skaganum!


Útilegukortið gildir ekki á Írskum dögum 2-4 júlí 

Heimilisfang: Kalmarsvík
Póstnúmer: 300 Akranes
Heimasíða: www.visitakranes.is
Fjarlægð frá Reykjavík: 42 km.
Opnunartími: 1.maí–30.september
Aðstaða fyrir:
Tjöld
Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi
Húsbíla

 
























 
Útilegukortið, Powered by Joomla!; Joomla templates by SG web hosting
login