| Vík í Mýrdal |
|
|
|
|
Tjaldsvæðið í Vík er rétt við Víkurþorp. Á tjaldsvæðinu er boðið upp á flesta þá þjónustu er tjaldgestir þurfa svo sem rafmagn fyrir húsbíla. Í þjónustuhúsi eru salerni, heitt og kalt vatn, sturtur og aðstaða til að matast. Stutt er í alla þjónustu sem er í göngufjarlægð frá tjaldsvæðinu. Vík er aðeins í rúmlega tveggja klukkustunda keyrslufjarlægð frá Reykjavík. Mýrdalurinn skartar fögru, ósnortnu umhverfi og einstakri náttúrufegurð. Margar helstu náttúrperlur Íslands eru í og við Vík svo sem Dyrhólaey og Reynisdrangar. Mikið er til af fallegum gönguleiðum í Vík og nágrenni. Fuglalíf er með eindæmum enda er veðurfar einstaklega milt, jafnt á sumri sem að vetri.
![]() Heimilisfang: Vík í Mýrdal
Póstnúmer: 870 – Vík
Sími: 487-1345
Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Fjarlægð frá Reykjavík: 176 km
Opnunartími: 1. júní til 15. september
Aðstaða fyrir:
Tjöld
Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi
Húsbíla
|






