Galtalækur PDF Print E-mail




Tjaldsvæðið við Galtalækjarskóg er eitt af þekktari tjaldsvæðum landsins enda voru þar haldin árlega bindindismót um verslunarmannahelgina  sem fjölmargir sóttu. 
Tjaldsvæðið liggur við rætur eldfjallsins Heklu og er inní grónum skógi og er því einkar skjólgott og fallegt.
Ráðist hefur verið í miklar endurbætur á aðstöðu og tjaldsvæði fyrir sumarið 2010 og er stefnt að því að koma þessu fallega svæði í fremstu röð.
Í Galtalækjarskógi er nóg pláss fyrir alla svæðið er mjög víðfemt og geta því stórir hópar komið sér fyrir saman eða hægt að finna sér svæði í kyrrð og ró.

Athugið að tjaldsvæðið við Galtalæk 2 er ekki inní Útilegukortinu heldur einungis tjaldsvæðið við Galtalækjarskóg.

Mjög stórt leiksvæði fyrir börn er á svæðinu.

Þegar keyrt er frá Reykjavík er beygt til vinstri við Landvegamót inn veg nr 24. og haldið áfram þangað komið er að Galtalækjarskóg og þar beygt inn til hægri.
Athugið að keyrter framhjá Galtalæk 2 stuttan spöl þangað komið er að Galtalækjarskógi.

 

Sími: 618-7400

Heimasíða: www.galtalaekjarskogur.is

Netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

Fjarlægð frá Reykjavík: 115 km 
Opnunartími: 16 júní - 30 ágúst

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Útilegukortið, Powered by Joomla!; Joomla templates by SG web hosting
login