| Álfaskeið |
|
|
|
|
Álfaskeið liggur í fallegum dal í Hrunamannahreppi við sunnanvert Langholtsfjall skammt frá Flúðum. Ungmennafélagið í sveitinni hélt þar reglulegar útisamkomur frá árinu 1908 í nærri 60 ár og var Álfaskeið því miðstöð útihátíða á Suðurlandi við upphaf síðustu aldar.
![]() Ungmennafélagið plantaði jafnframt mikið af trjám. Enda er trjágróður í miklum blóma á Álfaskeiði og fallegt skógarrjóður í kringum tjaldsvæðin. Góð aðstaða er við Álfaskeið. Aðeins eru um 10 kílómetrar í alla frekari þjónustu á Flúðum sundlaug, banka, verslun o.þ.h. Álfaskeið hefur verið vinsælt tjaldsvæði undanfarin ár enda á ekki að væsa um gesti þar.
Heimilisfang: Syðra Langholti Póstnúmer: 845 Flúðum Sími / GSM: 486 6774 Heimasíða: sydralangholt.is Netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it Opnunartími:
Tjöld Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi Húsbíla
|






