| Faxi |
|
|
|
![]() Tjaldsvæðið við Faxa er nýlegt tjaldsvæði í hinni sögufrægu sveit Biskupstungum, á bökkum Tungufljóts við fossinn Faxa og Tungnaréttir. Tjaldsvæðið er á rólegum stað í fallegu umhverfi, en samt í alfaraleið og stutt í alla þjónustu. Falleg fjallasýn og gönguleiðir. Svæðið er um 100 km frá Reykjavík, 50 km frá Selfossi . Keyrt er á bundnu slitlagi alla leið. Í Tungufljót hefur verið sleppt laxaseiðum í nokkur ár og þar er hægt að fá veiðileyfi. Við tjaldsvæðið er hægt að fá Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun og blómadropa eða bara njóta veðurblíðunnar í sveitasælunni.
Tjöld. Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi. Húsbíla.
|






