Þorlákshöfn PDF Print E-mail

 

Sveitarfélagið Ölfus er vestast í Árnessýslu. Heildarstærð þess er um 750 ferkílómetrar og eru íbúarnir yfir 1.971 talsins. Helstu atvinnugreinar eru fiskveiðar og vinnsla, verslun og þjónusta, landbúnaður og iðnaður.  Í dreifbýlinu eru margar góðar reiðleiðir, enda er mikið um hrossarækt og hestamennsku í Ölfusinu. Heitar uppsprettur eru við Hengilinn, en hann er eitt af stærstu jarðhitasvæðum landsins.




Þéttbýlisstaður sveitarfélagsins er Þorlákshöfn með um 1640 íbúa. Kauptúnið dregur nafn sitt af Þorláki helga Skálholtsbiskupi (1133-1193) og fer tvennum sögum af tilkomu nafnsins. Önnur sagan segir að staðurinn hafi fengið þetta nafn eftir að Þorlákur biskup steig þar á land, er hann kom frá biskupsvígslu 1178. Hin sagan segir að eigandi jarðarinnar hafi í sjávarháska heitið á Þorlák helga sér til liðsinnis og svo gefið Skálholti jörðina. Talið er að áður hafi jörðin heitið Elliðahöfn.

 



Útræði hófst snemma frá Þorlákshöfn. Meðan gert var út á áraskipum var ekki óalgeng að róið væri á 20-30 skipum frá Þorlákshöfn og hafa því íbúarnir þá verið um 3-400 yfir vertíðina. Núverandi þéttbýli myndast um og upp úr miðja síðustu öld í kjölfar uppbyggingar öflugrar útgerðar á vegum Meitilsins hf. Mikil fólksfjölgun varð einnig á 8. áratugnum eftir eldgosið í Heimaey.

 



Ferðaþjónusta er vaxandi atvinnugrein, sérstaklega í dreifbýli. Vinsælt er að fara í hestaferðir á vegum Eldhesta og einnig í gönguferðir um Hengilssvæðið. Veitingastaður er við ósa Ölfusár og í Þorlákshöfn er kaffihús, bókasafn og upplýsingamiðstöð í Ráðhúsi Ölfuss. Við bæjarmörkin er 18 holu golfvöllur og víða er veiði í vötnum og í ósum Ölfusár.  Rútur ganga frá Reykjavík til Þorlákshafnar og ferja þaðan til Vestmannaeyja.  .

Heimilisfang: Hafnarberg 41 (við Íþróttamiðstöðina)

Póstnúmer:  815 Þorlákshöfn

Sími / GSM:  483-3807 / 857-1788

 

Heimasíða: www.olfus.is

Netfang:  This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

 

Fjarlægð frá Reykjavík: 50 km

 

Opnunartími:   15. maí - 1.sept.

 

Aðstaða fyrir:

Tjöld

Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi

Húsbíla

 

 

Salerni
Kalt vatn
Gámar fyrir rusl

Opinn eldur bannaður
Bekkir og borð
Fjallasýn


Veitingahús

Vínveitingar


Gönguleiðir


 
Útilegukortið, Powered by Joomla!; Joomla templates by SG web hosting
login