Indriðastaðir PDF Print E-mail

 


Tjaldsvæðið  við Indriðastaði  sem er í hinum gróðri vaxna og fallega Skorradal skammt frá höfuðborginni. Er það kjörinn áningarstaður fyrir ferðalanga sem ætla sér stutt en hafa gaman af ferðinni og njóta útiverunar

VIð Indriðastaði hefur verið opnaður glæsilegur 9 holu golfvöllur sem er  krefjandi fyrir golfahugamenn og útsýnið af gólfvellinum yndislegt,  sem nær yfir  mestallan dalinn.Skorradalur er syðstur Borgarfjarðadala og er hann 28 km langur.

Skorradalsvatn fyllir upp mestan hluta dalsins og er hægt að gera góða veiði í vatninu á svæði Indriðastaða. Frítt er í veiði fyrir handhafa Útilegukortisns. Skógrækt hefur verið í miklum blóma í dalnum enda á skógræktin í ítök í sjö jörðum og hafa fjölmargir eigendur sumarbústaða í dalnum verið duglegir að planta trjám að auki. Fjölmargar gönguleiðir eru í dalnum má þar nefna gönguleið upp úr dalnum að Eiríksvatni,  að Hvalvatni, að Svartárkoti og alla leið niður í Þingvallaþjóðgarð. Einnig er hægt að fara eftir götuslóðanum Síldarmannagötur sem liggur niður í Hvalfjarðarbotn. Sú leið er vörðuð vörðum sem hlaðnar voru árið 1999.  Ganga um síldarmannagötur tekur um fjóra tíma og er hvorki erfið né hættuleg. Við tjaldsvæðið sem er skammt frá bænum er salernisaðstaða ásamt sturtu, þvottavél og uppþvottavaski.

Golf, veiði og göngutúrar er eitthvað sem henntar öllum eða bara láta tímann líða og lesa góða bók í fallegri sveit.

Rafmagn.
Wc.
Sturta.
Þvottavél.
Þurrkari.
Uppþvottur.

 

Ættrmót og stærri hópar hafið endilega samband  í This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it


Heimilisfang:
Indriðastaðir Skorradal
Póstnúmer: 311
Sími/GSM: 437 0066/862 1396
Netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði:
Opnunartími: 30 maí - 30.ágúst

Aðstaða fyrir:
Tjöld
Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi
Húsbíla

Þjónusta á svæðinu







 

 
Útilegukortið, Powered by Joomla!; Joomla templates by SG web hosting
login