| Þingeyri |
|
|
|
|
Þingeyri við Dýrafjörð á sér ríka sögu. Skammt utan bæjarins er Haukadalur þar sem Gísla saga Súrssonar gerðist að stórum hluta. Þingeyringar hafa á síðustu árum byggt upp víkingatengda ferðaþjónustu, smíðað víkingaskip sem siglir með ferðamenn á sumrin og halda árlega svokallaða Dýrafjarðardaga þar sem vígakappar skylmast, milli þess sem þeir grilla ofaní ferðamenn. Sundlaug, líkamsræktarstöð, íþróttahús, strandblakvellir, og nokkrir veitingastaðir eru meðal þeirrar þjónustu sem er í boði fyrir þá tjaldsvæðagesti sem heimsækja Þingeyri.
Heimilisfang: Tjaldsvæði Þingeyrarodda Póstnúmer: 470 Þingeyri Sími: 450- 8470 Heimasíða: www.isafjordur.is Netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 409 km/ 809 km Opnunartími: 1. júní til 15. september
Tjöld Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi Húsbíla
|





