| Laugar |
|
|
|
|
Tjaldsvæðið við Laugar í Sælingsdal er frábær staður til að slaka á í sveitasælunni. Sælingsdalur er umluktur lágum fjöllum til norðvesturs frá botni Hvammsfjarðar. Í næsta nágrenni við tjaldsvæðið er nýleg 25 metra útisundlaug og heitur pottur. Margt er að skoða í nánasta umhverfi. Byggðasafn Dalamanna á Laugum geymir ýmsa merka muni úr héraðinu og upplagt er að fara í ökuferðir fyrir Strandir, um Fellsströnd út í Klofning og Skarðsströnd til baka um Svínadal. Einnig má benda á safn Leifs Eiríkssonar á Eiríksstöðum í Haukadal sem er hið glæsilegasta og þar svífa andar víkinga yfir vötnum.
Heimilisfang: Laugar
Póstnúmer: 371 Búðardalur
Sími: 444 4930
Heimasíða: www.hoteledda.is
Opnunartími: 2. júní til 31. ágúst
Aðstaða fyrir: Tjöld
Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi
Húsbíla
Þjónusta í boði:
|






