Góðar gönguleiðir
Við Tálknafjörð að norðanverðu er víða töluverður jarðhiti sem nýtist vel. Ferðalangar geta notið heita vatnsins í góðri sundlaug á Tálknafirði, sem opin er árið um kring. Einnig er ylurinn nýttur við fiskeldi í fjarðarbotninum.
Undirlendi er lítið en inni af botni Tálknafjarðar er Botnsdalur. Þaðan liggja gamlar gönguleiðir og reiðleiðir yfir fjöll og heiðar til næstu byggðarlaga. Skemmtilegt er að ganga inn með Botnsánni og með Botnsgljúfrum, sem eru hrikaleg á köflum.
Utan við þorpið er sóknarkirkjan í Stóra-Laugardal sem er byggð árið 1906. Allt efni í bygginguna var flutt frá Noregi með hvalbátunum sem Norðmenn komu með frá Noregi í tengslum við hvalstöðina sem þeir ráku í Tálknafirði. Fyrir fáum árum var síðan byggð myndarleg kirkja í kauptúninu sjálfu.
Tignarleg náttúra
Vegur liggur út með Tálknafirði að sunnanverðu. Á þeirri leið eru nokkur eyðibýli, þröngir og brattir dalir og víða tignarleg náttúra. Á móts við kauptúnið handan fjarðar er Lambeyri. Fyrrum gekk þaðan ferja yfir Tálknafjörð enda aðeins um 200 metrar yfir Sveinseyraroddann utan við kauptúnið.
Frá Lambeyri er góð ganga og skemmtileg en nokkuð krefjandi yfir Lambeyrarháls og niður Litladal til Patreksfjarðar.
Miðsvæðis
Segja má að Tálknafjörður liggi þægilega miðsvæðis á sunnanverðum Vestfjörðum, þar er gott að vera á þægilegu tjaldsvæði og fara svo þaðan í skoðunarferðir á daginn, koma til baka að áliðnum degi, fara í sund og grilla á eftir.
Tálknfirðingar eiga sér ekki sérstaka sérstaka árlega viðburði svo heitið geti en sækja í staðin viðburði nágranna sinna enda stutt að sækja þá heim.
Á Patreksfirði er haldinn vegleg hátíð um sjómannadagshelgina og eru þar ýmsir skemmtilegir viðburðir hafðir í frammi, til Patreksfjarðar er um 15 mínútna akstur frá tjaldsvæði á Tálknafirði.
Heimilisfang: Sveinseyri
Póstnúmer: 460 Tálknafjörður
Sími: 456-2639
Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 415 km/ 840 km
Opnunartími: 1. júní til 1. september
Aðstaða fyrir:
Tjöld
Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi