Fréttir
Ljósmyndasamkeppni Útilegukortsins PDF Print E-mail

Útilegukortið stendur nú fyrir ljósmyndasamkeppni þar sem vegleg verðlaun verða veitt fyrir bestu ljósmyndirnar. Ljósmyndirnar skulu verða í góðri prentupplausn og vera af einhverju af 39 tjaldsvæðum Útilegukortsins.

Um er að ræað glæsileg verðlaun en þau eru

1. Útilegukortið 2011, flíspeysa frá Cintamani og 25 þús kr inneign hjá Víkurverk.

2. Útilegukortið 2011, flíspeysa frá Cintamani.

3. Útilegukortið 2011.

 

Tilnefningar óskast sendar á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it  fyrir 30. ágúst næstkomandi.

 

 
Útilegukortið styrkir Umhyggju félag langveikra barna. PDF Print E-mail

Útilegukortið mun í ár styrkja Umhyggju með gjöf á 30 Útilegukortum sem Umhyggja mun ráðstafa til fjölskyldna langveikra barna. Forsvarsmenn Útilegukortisins vonast til þess að þessi kort muni koma í góðar þarfir og verða vonandi mikið notuð í sumar.

Read more...
 
Stéttar og verkalýðsfélög sem bjóða Útilegukortið til sölu. PDF Print E-mail

Við viljum benda væntanlegum Útilegukortakaupendum að kanna hvort þeirra stéttar eða verkalýðsfélag muni bjóða Útilegukortið til sölu því söluverð stéttar og verkalýðsfélaganna eru mjög góð.  Eftirtalin félög munu bjóða kortið til sölu:


Kennarasamband Íslands
Verkalýðsfélag Snæfellinga
Rafiðnaðarsambandið
Sjúkraliðafélag Íslands
Bandalag Háskólamanna

Read more...
 
Útilegukortið 2010 – 39 tjaldsvæði um allt land PDF Print E-mail

Nú er búið að ganga frá samningum við þau 39 tjaldsvæði sem taka munu þátt í kortinu í ár. Kortið í ár verður jafnframt það stærsta í sögu Útilegukortsins þar sem aldrei hafa jafn mörg tjaldsvæði staðið korthöfum til boða. Ný tjaldsvæði eru: Grundarfjörður Hellissandur og Ólafsvík á Snæfellsnesi, Þingeyri, Flateyri og Dalbær á Vestfjörðunum.  Hvammstangi á Norðurlandi auk Beruness á Austurlandi. Á Suðurlandi mun Galtalækjarskógur, Eyrarbakki og T-bær í Selvogi koma ný inn í ár.   Það er von okkar að kortið muni koma að góðum notum og að korthafar prófi sem flest af þeim tjaldstæðum sem í boði eru.

 
Hvammstangi er nýtt tjaldsvæði í Útilegukortinu PDF Print E-mail

Enn bætast við tjaldsvæðin. Tjaldsvæðið í Hvammstanga á Norðurlandi er nýjasta viðbótin í tjaldsvæði Útilegukortsins. Þetta tjaldsvæði er rómað fyrir fegurð en það er í Kirkjuhvammi þar sem er skjólgott og fagurt.

 
Þingeyri og Flateyri hafa bæst við PDF Print E-mail

Þingeyri og Flateyri eru ný tjaldsvæði í Útilegukortinu 2010. Þetta mun vafalítið koma sér vel því fjölmargir ferðast um Vestfirðina hvert sumar.  Nú styttast verulega akstursleiðir milli tjaldsvæða á þessu fallega svæði.

 
Stéttarfélög munu bjóða Útilegukortið til sölu PDF Print E-mail

Sífellt fleiri stéttar- og verkalýðsfélög bjóða félagsmönnum sínum upp á Útilegukortið sem valkost þegar kemur að orlofsmálum. Mörg stéttarfélög niðurgreiða kortin eða bjóða félagsmönnum sínum að nýta inneign úr orlofssjóðum. Þetta er frábært framtak sem gagnast mörgum mjög vel. Nú hafa á þriðja tug stéttar og verkalýðsfélaga lagt inn pantanir fyrir næsta sumar. Það er vert að benda lesendum á að það er í flestum tilfellum lang-hagstæðast að kaupa kortið beint af stéttarfélagi. Athugaðu því hvort þitt félag sé að finna á listnaum hér að neðan.

Mikilvægt er að ítreka að starfsfólk Útilegukortsins getur ekki svarað fyrir verð og þ.h og er lesendum bent á að hafa samband beint við sitt félag.

Eftirfarandi félög munu bjóða félagsmönnum sínum Útilegukortið til sölu árið 2010. Við vonumst til að enn fleiri félög bætist svo í hópinn:


Aldan Stéttarfélag
Bandalag háskólamanna
Drífandi
Efling
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Félag málmtæknimanna á Akureyri
Kennarasamband Íslands
Landsamband sjúkra og slökkviliðsmanna
Rafiðnaðarsambandið
SFR
Sjómannafélag Eyjafjarðar
Sjómannafélagið Jötunn
Sjúkraliðafélag Íslands
Stéttarfélag verkfræðinga
Stéttarfélag Vesturlands
Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis
Verkalýðsfélag Akranes
Verkalýðsfélag Grindavíkur
Verkalýsðfélag Snæfellinga
VM félag vélstjóra og málmtæknimanna
VR

 
Sumarið og tækifærin PDF Print E-mail

Sumarið er tíminn! Sumarið er tími tækifæra til að njóta svo margs. Allan veturinn bíðum við eftir góða veðrinu og löngum dögum og sumarnóttum. En þessi tími líður alltaf ótrúlega hratt. Það er því mikilvægt að staldra við og ákveða hvernig við nýtum þennan dýrmæta tíma.

 

Read more...
 


Útilegukortið, Powered by Joomla!; Joomla templates by SG web hosting
login