Tjaldsvæðið á Drangsnesi er staðsett ofan við þéttbýliskjarnann á Drangsnesi í Strandasýslu, við norðanverðan Steingrímsfjörð. Svæðið er rúmgott, vel skipulagt og hentar einstaklega vel bæði fyrir fjölskyldur og stærri hópa.
Á tjaldsvæðinu er góð hreinlætisaðstaða með sturtum, auk þvottavélar og þurrkara. Rafmagn er víða um svæðið og ættu flestir gestir að komast í tengi. Við tjaldsvæðið er íþróttavöllur og nýr ærslabelgur sem gleður yngstu gestina.
Margrómuðu heitu pottarnir í fjörunni á Drangsnesi eru staðsettir aðeins um 300 metrum fyrir neðan tjaldsvæðið. Þar geta gestir slakað á í einstöku umhverfi með útsýni yfir fjörðinn, upplifun sem fáir gleyma. Við pottana er einnig góð hreinlætisaðstaða og sturtur.
Tjaldsvæðið er mjög stórt og því yfirleitt nóg pláss. Svæðið hentar sérstaklega vel fyrir ættarmót og aðra viðburði. Einnig er hægt að leigja samkomuhúsið Baldur, sem að rekur tjaldsvæðið fyrir veislur og viðburði.
Svæðið er fyrst og fremst fjölskylduvænt og eru gestir beðnir um að sýna tillitssemi, takmarka akstur innan svæðisins og virða næturró. Ölvun og háreysti getur leitt til tafalausrar brottvísunar.
Í þorpinu er góð þjónusta, þar á meðal verslunarfélag í eigu bæjarbúa og veitingastaðurinn Malarkaffi. Sundlaugin á Drangsnesi býður upp á heita potta, barnalaug, gufubað og líkamsrækt og er vinsæl meðal gesta.
Fallegar gönguleiðir eru í nágrenninu, til dæmis merkt leið á Bæjarfell (345 m) þar sem blasir við víðáttumikið útsýni yfir Húnaflóa og norðurstrandir. Skammt frá eru einnig skemmtilegar fjörur sem eru ævintýri fyrir unga sem aldna.
Afþreying í nágrenninu er fjölbreytt. Boðið er upp á hvalaskoðun frá Hveravík og siglingar á vegum gistiheimilisins Malarhorns út í Grímsey, sem er sannkölluð náttúruparadís með einni stærstu lundabyggð Evrópu. Í þeirri ferð er einnig hægt að fara í sjóstangaveiði.
Athugið: Útilegukortið gildir ekki á Bryggjuhátíðinni 17.–19. júlí né þann 12. ágúst þegar sólmyrkvi verður.
Þjónusta
Upplýsingar
Heimilisfang Drangsnes
Póstfang/Bær 520 Drangsnes
Sími 7628455
Netfang Baldursamkomuhus@gmail.com
Vefsíða facebook.com/tjaldsvaedidadrangsnesi
Opnunartími 15. maí – 15 .september
Fjarlægð frá Reykjavík: 264 km
Fjarlægð frá Seyðisfirði: 640 km
Kort
Myndir


























