
Tjaldsvæðið Kleifar stendur við Geirlandsveg 2,5 km frá Kirkjubæjarklaustri. Við tjaldsvæðið er fallegur foss sem heitir Stjórnarfoss og á góðviðrisdögum verður vatnið í Stjórninni svo heitt að hægt er að fá sér sundsprett. Á tjaldsvæðinu eru tvö vatnssalerni og kalt rennandi vatn, bekkir og borð og beint á móti tjaldsvæðinu er fótboltavöllur. Stutt er á Kirkjubæjarklaustur þar sem hægt er að komast í matvöruverslun, veitingastaði og sundlaug svo eitthvað sé nefnt. Mikið er af skemmtilegum merktum gönguleiðum í nágrenni tjaldsvæðisins og fallegum stöðum til að skoða. Gaman er að skoða Kapelluna á Kirkjubæjarklaustri sem var vígð árið 1974 og byggð í minningu sr. Jóns Steingrímssonar, þess klerks sem söng hina frægu Eldmessu, 20. Júlí 1783, í kirkjunni á Klaustri. Talið er að Eldmessan hafi stöðvað hraunstrauminn sem þá ógnaði byggðinni.
Systrastapi er klettastapi vestan við Klaustur. Þjóðsaga segir að uppi á stapanum sé legstaður tveggja klaustursystra sem áttu að hafa verið brenndar á báli fyrir brot á siðareglum. Önnur hafði selt sig fjandanum, gengið með vígt brauð fyrir náðhúsdyr og lagst með karlmönnum. Hin hafði talað óguðlega um páfann. Eftir siðaskiptin var seinni nunnan talin saklaus og á leiði hennar óx fagur gróður en á leiði hinnar seku var gróðurlaust. Klifurfært fólk kemst upp á stapann en þaðan er mikið útsýni með jöklasýn.
Country calling code | +354 |
International call prefix | 00 |
Emergency services | 112 |
Police | 444 2500 |
Directory enquiries | 1818, 1819 or 1800 |
Speaking clock | 155 |
Currency | Rate | Amount |
---|---|---|
ISK | 1 | |
USD | 119.7 | |
DKK | 18.19 | |
EUR | 135.7 | |
NOK | 13.91 | |
GBP | 156.28 | |
SEK | 12.8 |